Hver er Gýja?
Ég heiti Guðný Kristín Finnsdóttir, kölluð Gýja og er viðskiptafræðingur með M.Sc. gráðu í stjórnun og stefnumótun ásamt því að hafa lokið námi í grafískri hönnun og straumlínustjórnun.
Vegna stöðugra meltingartruflana fyrstu 30 ár ævinnar tók ég þá ákvörðun að bæta mataræði mitt í þeirri von að verkir eftir máltíðir myndu hverfa. Ég ákvað að tileinka mér mataræði sem hentar mínum líkama og með tímanum lærði ég að hlusta á eigin líkama og meltingartruflanirnar hurfu.
Í meira en 20 ár hef ég náð að viðhalda hollu mataræði á meðan ég hef stundað háskólanám, sinnt fjölskyldu, stofnað fyrirtæki, stundað líkamsrækt og unnið krefjandi störf. Þetta hefur krafist aga og hef ég náð að finna leiðir til að standa með sjálfri mér í að borða hollan mat þrátt fyrir annir. Í dag langar mig að deila þeirri þekkingu sem ég hef viðað að mér í gegnum árin. Mig langar að miðla af mér á persónulegan hátt í eigin eldhúsi og því býð ég alla velkomna á námskeið til mín. Ég vil sýna hvernig hægt er að velja að borða hollan mat alla daga. Góð hráefni skipta máli, aðgengi og ekki síst samsetning sem fáir gefa gaum. Það er að mörgu að huga og það getur reynst erfitt að gera breytingar til framtíðar. Það að fjárfesta í eigin heilsu er besta fjárfesting sem þú getur gert. Fyrst ég gat þetta getur þú það líka. Ég býð þig velkomna/velkominn til mín og hlakka til að sjá þig.