Grunnur að hollu mataræði og skipulagning

39.500 kr.

Námsefni: Farið er í hráefnaval, meðhöndlun hráefna, hollar eldunaraðferðir, samsetningu fæðu, magn og skipulagningu mataræðis. Farið er yfir helstu ráð fræðimanna samtímans og hvaða hráefni styðja þarmaflóru. Spurningum svarað eins og „Hvað er í skápunum í holla eldhúsinu?“, „Hvaða hráefni er ekki æskilegt að borða á sama tíma?“, „Hvernig sendir líkaminn minn mér skilaboð og hvernig get ég hlustað betur á hann?“, „Hvernig meðhöndla ég fræ, hnetur, olíur og baunir?“ og „Hvernig næ ég að standa með mér  við ólíkar aðstæður s.s. í veislum, á veitingastöðum og ferðalögum?“. Þátttakendum gefst kostur á að setja sér markmið og fá endurgjöf á síðari degi. Áhersla er á forvarnir og hollan lífsstíl.

Markmið:

  • Að þú fáir verkfæri til að styðja við heilsu og vellíðan í daglegu lífi.
  • Að styrkja þig í að hlusta á eigin líkama og lífsorku auk þess finna út hvaða mataræði hentar þér
  • Að leiðbeina í gegnum mataræði, svefn og hreyfingu
  • Að miðla sjálfbærri, hagnýtri rútínu og þekkingu

Innifalið: PDF bæklingur með uppskriftum sem sendur verður að námskeiði loknu.

Kennari: Guðný Finnsdóttir, „Gýja“

Lengd: Tvö skipti

Tímasetning námskeiðs: Laugardaga kl. 9.30 til 11.30 eða virka daga frá kl. 16.30-18.30. Sjá nánari dagsetningar í fellilista hér að neðan.

Hámarksfjöldi þátttakenda: 9

Hægt er leita til síns stéttarfélags varðandi upplýsingar um endurgreiðslu námskeiðskostnaðar hjá viðkomandi félagi.

Athygli er vakin á að nálægð við hnetur er möguleg á námskeiðinu.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, en engin dagsetning er í boði í fellilistanum hér að neðan, getur þú sent tölvupóst á gyja@heilsunamskeid.is.

- +

Staðsetning: Námskeiðið er haldið á Grandavegi 42G, íbúð 203, gengið er inn garðmegin

Bílastæði: Hægt er að leggja í bílastæði á Grandavegi, í porti bakvið JL húsið

Valin dagsetning

7. mars fyrri hluti – 14. mars síðari hluti, laugardagar kl. 9.30-11.30, 21. mars fyrri hluti – 28. mars síðari hluti, laugardagar kl. 9.30-11.30, 11. apríl fyrri hluti – 18. apríl síðari hluti, laugardagar kl. 9.30-11.30, 25. apríl fyrri hluti – 2. maí síðari hluti, laugardagar kl. 9.30-11.30, 9. maí fyrri hluti – 16. maí síðari hluti, laugardagar kl. 9.30-11.30, 1. júní fyrri hluti – 8. júní síðari hluti, mánudagar kl. 16.30-11.30

Þér gæti einnig líkað við…

Scroll to Top