Skipulagning mataræðis á breytingaskeiði

39.500 kr.

Námsefni: Námsefni miðar út frá þeim breytingum sem eiga sér stað þegar einstaklingur nálgast breytingaskeið og/eða er á breytingaskeiði. Farið er í skipulag mataræðis, hráefnaval, meðhöndlun hráefna, eldunaraðferðir og samsetningu fæðu á breytingaskeiði. Farið er yfir hvaða hráefni styðja þarmaflóru og hormónabreytingar. Námskeiðið er tileinkað þeim sem vilja auka þekkingu sína á breytingaskeiði.

Markmið:

  • Að þú fáir verkfæri til að styðja við heilsu og vellíðan á breytingaskeiði.
  • Að styrkja þig í að hlusta á og skilja eigin líkama.
  • Að auka lífsorku og finna hvaða mataræði sem styður breytingaskeið hentar þér.
  • Að leiðbeina í gegnum mataræði og svefn.

Innifalið: PDF bæklingur með uppskriftum sem sendur verður að námskeiði loknu

Kennari: Guðný Finnsdóttir, „Gýja“

Lengd: Tvö skipti

Tímasetning námskeiðs: Virka daga kl. 16.30 til 18.30 eða laugardaga frá kl. 9.30-11.30. Sjá nánari dagsetningar fellilista hér að neðan.

Hámarksfjöldi þátttakenda: 9

Hægt er leita til síns stéttarfélags varðandi upplýsingar um endurgreiðslu námskeiðskostnaðar hjá viðkomandi félagi.

Athygli er vakin á að nálægð við hnetur er möguleg á námskeiðinu.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, en engin dagsetning er í boði í fellilistanum hér að neðan, getur þú sent tölvupóst á gyja@heilsunamskeid.is.

- +

Staðsetning: Námskeiðið er haldið á Grandavegi 42G, íbúð 203, gengið er inn garðmegin

Bílastæði: Hægt er að leggja í bílastæði við Grandaveg eða í port bak við JL húsið

Þér gæti einnig líkað við…

Scroll to Top