Skipulagning mataræðis fyrir 40+

39.900 kr.

Námsefni: Farið er í skipulag mataræðis, hráefnaval, meðhöndlun hráefna, eldunaraðferðir, tímasetningu og samsetningu fæðu. Farið er yfir hvaða hráefni styðja þarmaflóru og hormónabreytingar. Námskeiðið er tileinkað þeim sem vilja auka þekkingu sína á skipulagningu mataræðis á seinni helmingi ævinnar bæði á forstigi breytingaskeiðs, á meðan á því stendur og eftir breytingaskeið. Auk þess er farið yfir samspil hreyfingar og mataræðis m.t.t. minnkandi estogenmagns og hvernig tímasetning matar og æfinga spila saman.

Farið er í hvaða líkamsþjálfun styður konur 40 ára og eldri þar sem tekið er tillit til hormónabreytinga, beinheilsu og fleira.

Markmið:

  • Að þú fáir verkfæri til að styðja við heilsu og vellíðan.
  • Að styrkja þig í að hlusta á og skilja eigin líkama.
  • Að auka lífsorku.
  • Að leiðbeina í gegnum mataræði, hreyfingu og svefn með áherslu á kvenheilsu eftir fertugt.
  • Að upplifa skemmtilega kvöldstund í góðum félagsskap.

Innifalið: Tveir aðalréttir og tveir eftirréttir ásamt PDF bæklingi með uppskriftunum sem boðið var upp á. Uppskriftirnar verða sendar að námskeiði loknu.

Kennari: Guðný Finnsdóttir, „Gýja“

Lengd: Tvö skipti.

Tímasetning námskeiðs: Virka daga kl. 16.30 til 19.00 eða laugardaga frá kl. 9.00-11.30. Sjá nánari dagsetningar og tímasetningar í fellilista hér að neðan.

Hámarksfjöldi þátttakenda: 9.

Flest stéttarfélög endurgreiða hluta af námskeiðskostnaði miðað við úthlutunarreglur viðkomandi félags. Hægt er leita til síns stéttarfélags varðandi upplýsingar um endurgreiðslu námskeiðskostnaðar.

Athygli er vakin á að nálægð við hnetur er á námskeiðinu.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, en engin dagsetning er í boði í fellilistanum hér að neðan, getur þú sent tölvupóst á gyja@heilsunamskeid.is.

Velkomin í hormónapartí!

- +

Staðsetning: Námskeiðið er haldið á Grandavegi 42G, íbúð 203, gengið er inn garðmegin.

Bílastæði: Hægt er að leggja í bílastæði á Grandavegi eða í porti bakvið JL húsið.

Þér gæti einnig líkað við…

Scroll to Top